
Lilja Peysa
Peysan er glæsileg og mjúk, með blöðruermum, gataprjóni og blúndukanti. Hún hentar jafnt þegar fólk vill vera fínt, til dæmis í sumarbröns í garðinum, og fyrir notalegt kvöld heima. Peysan er prjónuð ofan frá og niður og laskaútaukning er notuð fyrir ermarnar. Ermarnar eru blöðruermar með I-cord kanti og eru hannaðar til að vera aðeins víðari en venjulega. Blúndukanturinn er prjónaður sér og saumaður við peysuna í lokin, svo úr verður bylgjaður kantur.
Nánari upplýsingar um garn, prjónafestu og stærðir eru á leiðinni.