
Freyja Grifflur
Þessar fáguðu grifflur eru aðsniðnar og með fíngerðum bylgjukanti sem gefur þeim kvenlegt og rómantískt yfirbragð. Grifflurnar eru prjónaðar neðan frá og upp, byrjað er við úlnlið og endað við fingur. Þumallinn er mótaður með jöfnum útaukningum og lykkjurnar síðan geymdar á meðan restin af grifflunni er prjónuð. Að lokum eru þumallykkjurnar teknar upp aftur og þumallinn prjónaður sér, með I-cord kanti. Grifflan sjálf og bylgjukanturinn eru prjónuð í sitthvoru lagi. Þegar báðir hlutar eru tilbúnir eru þeir prjónaðir saman og fellt af með I-cord affellingu, sem gefur snyrtilegan og fallegan kant.
Nánari upplýsingar um garn, prjónafestu og stærðir eru á leiðinni.